Myrka Ísland
Episodes
105 episodes
Hallmundur og hellarnir
Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir æsispennandi hraunbreiðuna Hall...
Morðabelgur
Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í tíma. Annað er frá 1891, þar sem du...
Fannbarið fé
Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og mundu hvorki elstu menn, né veðurfr...
Verbúðin Ísland
Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið viðbúin að komast að uppruna ýmissa ...
Af vandamálum presta
Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum. Prestastefnur voru, og eru eflaust ...
Krunk, krunk hrafnar
Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við okkur frá landnámi og af honum ha...
Úr snjóflóði
Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í tímann. Ungur maður fór eitt sinn í e...
Þúsundkallinn Brynjólfur
Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til röddin gefur sig. Nær engan vegin a...
Bárður Snjáfellsás
Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu. Fjölskylduböndin eru á flækjustigi á pari við Bíl...
Morð fyrir tvo
Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og sögupersóna, hvort sem hún endaði í tveimu...
Auka þáttur! Ung, há, feig og ljóshærð, skrif Auðar Haralds
Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og tótemdýr; Auði Haralds. Fyndnari og kald...
Vesturfarar
Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum sértrúarsöfnuði, breytum okkur í...
Berklar
Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt og fellt heilu fjölskyldurnar. Veðu...
Vistarbandið; hið íslenska þrælahald?
Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl, hörundssára bændastétt og æsilegar ...
Anna á Stóru Borg
Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar illa. Þar sem sá maður sem henni ...
Aftaka Jóns Arasonar
Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til trúskipta, tala tungum, stunda byss...
Fleiri hrakningar á heiðum
Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs afrétt. Eða er það Hofsa frétt? Boðsk...
Spíritismi tekur land á Íslandi
Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn varð óralangur því það gleymdist ...
Morð í Eyjum
Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli, forvitnar klöguskjóður, sögusagnir ...
Björn Jórsalafari
Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er beinar heimildir þrýtur er alltaf h...
Ljósufjöll
Árið er 1986. Þetta var á þeim árum þegar slys lítilla flugvéla voru allt of algeng og kröfðust margra mannslífa. Skoðum eitt af þessum hræðilegast slysum, þegar lítil vél fórst á leið sinni frá Ísafirði til Reykjavíkur. Vegna ofsaveðurs voru b...
Jörundur hundadagakonungur
Síðasti þátturinn í áttundu seríu fjallar um fjárglæframanninn, spilafíkilinn, skipstjórann, landkönnuðinn, fangann, landnemann, löggæslumanninn, túlkinn, njósnarann, umbótamanninn, kaupmanninn og síðast en ekki sísts, æðsta ráðamann Íslands, J...
Ferðalangurinn Guðríður Þorbjarnardóttir
Förum nánast til upphafs Íslandssögunnar að þessu sinni og kynnumst hinni víðförlu konu Guðríði Þorbjarnardóttur sem samkvæmt sögum ferðaðist um allan hinn þekkta heim víkingatímans; frá Vesturheimi til Rómar. Sem er áhugavert út af fyrir sig. ...